Foreldrafélag Barnaskóla Kársness er vettvangur foreldra og forsjáraðila til að styðja við skólastarfið og efla samstarf milli heimila og skóla.
Hlutverk félagsins
Foreldrafélagið stendur meðal annars fyrir viðburðum og verkefnum sem styrkja skólasamfélagið, í samstarfi við starfsfólk og Foreldraráð.
Þátttaka
Allir foreldrar/forsjáraðilar nemenda Barnaskóla Kársness eru sjálfkrafa félagar í Foreldrafélaginu. Áhugasamir um að taka virkari þátt geta haft samband við skrifstofu skólans.